Gleðilegt nýtt ár!

 

Norðanvindurinn nætt hefur þrátt

napur á fjallstindum barið,

við söknum þín milda sunnanátt

með siglandi skýjafarið.

Inni í hlýjunni höldum við til

meðan hefur sig burt þetta tímabil.

 

Árið stendur hér illa klætt,

enn á brott það heldur,

á höfði skaðað, því hefur blætt,

því hroki og græðgi veldur.

Við kveðjum það gjarnan, við gluggann stöndum,

því glaðlega veifum með báðum höndum.

 

Við setjumst ánægð með óskrifað blað

ótrauð nú semjum að nýju.

Frumsamdir skrifast þættir á það

af þekkingu, ástúð og hlýju.

Í liði okkar ljúfust er sólin,

sem lagt hefur yfir sig nýárskjólinn.

 

Skillinge 023


Lopaljóðin

 

 Nokkrar myndir frá kynningum á bókinni minni, lopaljóðum í sauðalitum

Sala á bókinni gengur vel og ég vona að bókin gleðji.

(Allar myndir teknar af Jörgen Midander)

läs3                                     GetAttachment  

 Gaman!                                                                                                    Áritanir.

Spjallað

                                              ms

Ljóð í eftirrétt
Í M&M

Jólagjafahandbókin

 

Jólagjafahandbókina hérna ætla að birta,

hana má nota ef í álinn fer að syrta.

Ef áttu litla peninga þú alltaf gefið getur

góða sneið af tíma á kort það fært í letur.

 

Ef áttu góða vini sem eru önnum kafnir

sem yfir þrif og tiltekt stundum virðast hafnir,

fyrir jólahátíðina bjóddu þeim að þrífa

og þeir munu af hrifningu um íbúðina svífa.

 

Svo má alltaf bjóða að baka góða köku,

búa um rúm og yrkja kannski eina litla stöku,

passa litlu börnin, þeim gæðatíma gefa,

gleðja þau og spennandi ævintýrin vefa.

 

Einnig skaltu muna það að þörf er alltaf á

að þvo og strauja vonir, í framtíðina að spá,

gefa nokkur faðmlög, falleg orð að skrifa

til fólks um þetta undur sem nefnt er að lifa.

des 007


Góðan dag

Þreyttur stundum vart dagurinn drattast á fætur,

dimmur og snúinn, heldur að enn sé nótt.

Einstaka morgna gleði fjarri hann grætur,

grá eru tár hans og köld en það breytist skjótt.

Því birtan læðist inn eftir litla stund

og lífsglaður brosir morgunninn eftir þann fund.

snjór11

 


Millikafli

Þó dagurinn hvílist í desember lengi

og dulbúist jafnvel sem kvöld,

þá leikur af snilld á lifandi strengi,

af ljósinu þiggur hann völd.

Hann minnir á gleði, það gæfa sé

að gefa sér tíma, örlítið hlé

og ef að við fögnum því barni sem býr

í brjóstum okkar, þá myrkrið flýr.

 

(Úr Lopaljóðum)

des 009


Öryggi

 

Mikið er ég fegin að frostið komi enn,

að fannir muni leggjast á jörðina senn,

að veðurfarið einnkennist af umhleypingum hér,

að allt sé þetta næstum því eins og vera ber.

 

Þegar okkar eigin verk á engan hátt standast,

og öll þessi efnishyggja hátíðlega andast,

þá er svo gott að sjá að veðrið föstum fótum

sem fagurlimað tré hér skotið hafi rótum,

að ennþá komi árstíðir með alla sína kosti,

að ennþá kyssi haustið með ,,varagloss" úr frosti.

snjór9


gleymum ei

Tendruð ljós í litríkum röðum

lýsa upp flesta glugga.

Við fylgjumst með börnum á götunni glöðum,

þau gantast, úti er mugga.

Einhver dreifir aðventublöðum

á ánægju hvergi ber skugga.

Gráturinn er á öðrum stöðum

þar sem enginn er börnin að hugga.

stokkhólmur 036


Sólskinsmegin

 

Inn um stofugluggann, geislar ljóssins læðast

ljúfir eins og börn, gildi þessa dags

og þó að sumir eyðist þá aðrir glaðir fæðast,

elskulegir fylgja mér allt til sólarlags.

Hugsun mína styrkja svo byrðar geti borið,

benda mér á allt það góða sem ég hef,

þeir dimmum skuggum eyða, efla ljúfir þorið,

orðin klæða litum sem  hér ég ykkur gef.

 

stokkhólmur 010

 

Ástin

 

Glóir í huga, gyllt sem stjarna,

er glampi í augum saklausra barna,

hún kitlar í maga, kætir alla,

er keisaraynja tignustu fjalla.

 

Hún gefur vængi, veitir unað,

vermir meira en hafði þig grunað.

Hún særir einnig svo undan blæðir,

þó oftast sárin að nýju græðir.

 

Í vináttu er hún vandlega ofin,

vefurinn sá ei létt sýnist rofinn.

Ástin er litrík ótrúleg kennd,

eins og af himnum til okkar send.

stokkhólmur 049


lopaljóð í sauðalitum - útgáfa

Kæru bloggvinir og allir aðrir sem þetta lesa. Nú er óratími síðan ég var hér síðast og tímabært að hefja leik að nýju. Bókin mín, lopaljóð í sauðalitum er nýkomin út og finnst í flestum bókaverslunum. Ég vona að þið eigið eftir að njóta bókarinnar sem er öll myndskreytt. Þið getið skoðað hana með því að smella á þessa slóð:

http://issuu.com/unnursolrun/docs/lopaljod 

Eitt ljóð úr bókinni 

Vefnaður

Úr orðunum ykkar ég  ætla hér  að spinna

allra mýkstu gluggatjöld hugrenninga minna.

Í gegnum þau brýst sólin með sælubros á vörum,

sigurinn í augum, því hún veit að okkur spjörum.

Litirnir í tjöldunum þeim töframátt gefa

með tónaflæði varkárnu áhyggjur sefa

og þegar læðist inn hér ofvakið kvöld,

ástúðlega dreg ég fyrir þessi gluggatjöld.

feb08 003

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband