Jólagjafahandbókin

 

Jólagjafahandbókina hérna ætla að birta,

hana má nota ef í álinn fer að syrta.

Ef áttu litla peninga þú alltaf gefið getur

góða sneið af tíma á kort það fært í letur.

 

Ef áttu góða vini sem eru önnum kafnir

sem yfir þrif og tiltekt stundum virðast hafnir,

fyrir jólahátíðina bjóddu þeim að þrífa

og þeir munu af hrifningu um íbúðina svífa.

 

Svo má alltaf bjóða að baka góða köku,

búa um rúm og yrkja kannski eina litla stöku,

passa litlu börnin, þeim gæðatíma gefa,

gleðja þau og spennandi ævintýrin vefa.

 

Einnig skaltu muna það að þörf er alltaf á

að þvo og strauja vonir, í framtíðina að spá,

gefa nokkur faðmlög, falleg orð að skrifa

til fólks um þetta undur sem nefnt er að lifa.

des 007


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk ljúfust, að vanda hlýnar manni í hjarta sínu

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.12.2009 kl. 16:49

2 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Já tek undir með Millu..Þú ert frábær!

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 13.12.2009 kl. 22:35

3 Smámynd: Unnur Sólrún

Ástarþakkir fyrir þetta. Ekkert væri þetta án ykkar lesendur. Ljúfar ljóðakveðjur kæru konur.

Unnur Sólrún, 13.12.2009 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband